Uppfærð fréttatilkynning vegna skilgreinda áhættusvæða vegna COVID-19

Skíðasvæði í Ölpunum eru nú skilgreind áhættusvæði vegna veirunnar sem veldur COVID-19 sjúkdómi. Þetta var ákveðið af sóttvarnalækni að viðhöfðu samráði við ríkislögreglustóra.

Umrædd svæði eru í fjórum löndum; Austurríki, Sviss, Þýskalandi og Frakklandi. Þessi svæði bætast við áðurnefnd áhættusvæði (Kína, Suður-Kórea, Íran og Ítalía auk Ischgl í Austurríki).

Nýju svæðin eru t.d. Val Thorens, Chamonix, Zermatt, St. Anton, Ischgl, Serfaus, Sölden, Garmisch, Hintertux, Kitzbuhel, Saalbach, Wagrein o.fl.

Landsvæðin eru eftirfarandi:

  • Austurríki
    • Öll skíðasvæði
  • Sviss
    • Öll skíðasvæði
  • Þýskaland
    • Skíðasvæði í Suður Bæjaralandi
  • Frakkland
    • Provence-Alpes-Côte d’Azur
    • Auvergne-Rhône-Alpes
  • Slóvenía
    • Öll skíðasvæði

Íslendingar sem hafa dvalið á þessum svæðum frá 29. febrúar eiga að fara í 14 daga sóttkví frá því að þeir yfirgáfu viðkomandi svæði.

Þeir sem hafa verið á þessum svæðum og finna til einkenna eru hvattir til að hafa samband við síma 1700, tilgreina að þeir hafi verið á hættusvæði og fá ráðgjöf um næstu skref.  

Vegna aukinna fjölda staðfestra tilvika COVID-19 hjá fólki hér á landi og erlendis sem hefur verið á skíðasvæðum í Ölpunum telur sóttvarnalæknir aukna áhættu á smiti á því svæði. Því er gripið til þess að skilgreina þessi svæði sem áhættusvæði. Ljóst er að fjöldi Íslendinga er á þessum svæðum nú um stundir. Er þeir hvattir til að skrá sig i grunn borgaraþjónustunnar sem nálgast má á heimasíðu utanríkisráðuneytisins.

Hér má nálgast skilgreind áhættusvæði vegna COVID-19 https://www.landlaeknir.is/um-embaettid/greinar/grein/item39194/Skilgreind-ahaettusvaedi—Defined-high-risk-areas