Uppfærðar ráðleggingar vegna ferðalaga

Sóttvarnarlæknir ræður nú frá ónauðsynlegum ferðum til Suður-Kóreu og Írans, auk Kína og fjögurra héraða á Norður-Ítalíu. Þá er hvatt til sérstakrar varúðar þegar ferðast er til annarra svæða á Ítalíu, Tenerife á Spáni, Japans, Singapúr og Hong Kong.

Ráðleggingar til ferðamanna varðandi kórónaveiruna COVID-19 hafa nú verið uppfærðar. Skilgreind hafa verið tvö áhættusvæði, svæði þar sem miklar líkur eru taldar á samfélagssmiti og svæði með lága áhættu. Varað er við ónauðsynlegum ferðum til fyrrnefndu svæðanna en þeim koma frá svæðum þar sem áhættan er minni er bent á að gæta að almennu hreinlæti og hafa samband við Læknavaktina í síma 1700 ef sjúkdómseinkenni koma í ljós. Hafa ber í huga að staða mála í Evrópu með tilliti til COVID-19 breytist hratt og því gætu ráðleggingar sóttvarnalæknis breyst með stuttum fyrirvara.

Borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins hefur opnað sérstakan gagnagrunn fyrir Íslendinga erlendis sem óska eftir að vera á skráðir hjá utanríkisráðuneytinu og upplýstir um ferðaráð vegna COVID-19 veirunnar á meðan á dvöl þeirra stendur.

Áhættusvæði
Sóttvarnalæknir hefur skilgreint áhættusvæði sem svæði þar sem miklar líkur eru á samfélagssmiti, en þau svæði eru; Kína, fjögur héruð á Norður Ítalíu (Lombardía, Venetó, Emilia Rómanja og Píemonte), Suður-Kórea og Íran. Ráðleggur sóttvarnalæknir gegn ónauðsynlegum ferðum til þessara svæða og mælist til að þeir sem hafa verið þar nýlega fari í fjórtán daga sóttkví og hafi samband við Læknavaktina í síma 1700 eða sína heilsugæslustöð. Einnig eru þeir sem hafa dvalið á H10 Costa Adeje Palace hótelinu á Tenerife á Spáni frá 17.febrúar sl. beðnir um að halda sig heima í sóttkví í fjórtán daga frá því þeir yfirgáfu hótelið og vera í sambandi við 1700 eða sína heilsugæslustöð. Sjá nánari upplýsingar um sóttkví í heimahúsi.

Svæði með lága áhættu
Svæði með lága áhættu eru þau svæði þar sem tilfellum hefur fjölgað undanfarið en minni líkur eru taldar á almennu smiti. Þessi svæði eru: önnur svæði á Ítalíu, Japan, Singapúr, Hong Kong og Tenerife (fyrir utan H10 Costa Adeje Palace hótelið). Ferðamenn sem eru nú þegar á þessum svæðum og þeir sem hafa nýlega komið þaðan eru beðnir um að huga vel að persónulegu hreinlæti og sýkingavörnum. Þær fela meðal annars í sér að þvo hendur oft og vel, hafa klút fyrir andlitinu við hnerra og hósta í olnbogabót og nota handspritt. Ekki er talin nauðsyn á sérstakri sóttkví fyrir þá sem eru nýkomnir frá þessum svæðum. Almenningur getur með auðveldum hætti dregið úr sýkingarhættu með því að gæta vel að persónulega hreinlæti. Handþvottur og almennt hreinlæti í kringum augu, nef og munn og það að forðast að heilsa með handabandi hefur lykilþýðingu við að forðast smit og fækka smitleiðum.

Hafið samband við 1700 (fyrir erlend símanúmar +354 544-4113) ef grunur vaknar um smit

Nýja kórónaveiran (COVID-19) hagar sér í sumu eins og inflúensa, einkenni eru svipuð og smitleiðir áþekkar. Einkenni eru helst hósti, hiti, bein- og vöðvaverkir, þreyta o.s.frv. Veiran getur valdið alvarlegum veikindum hjá þeim sem veikir eru fyrir lýsir það sér með sýkingum í neðri öndunarfærum og lungnabólgu, sem koma oft fram sem öndunarerfiðleikar á 4.-8. degi veikinda.

Ef einstaklingar finna fyrir veikindum er þeim bent á að hringja í síma 1700 (fyrir erlend símanúmar +354 544-4113) varðandi nánari upplýsingar og hvernig þeir eigi að nálgast heilbrigðiskerfið. Þessir einstaklingar eru sérstaklega beðnir um að mæta ekki á bráðamóttöku sjúkrahúsa eða á heilsugæslustöðvar nema að fengnum ráðleggingum í síma.