Uppfærsla á áhættumati Sóttvarnlæknis

Sóttvarnalæknir hefur hækkað áhættumat fyrir Spán, Þýskaland og Frakkland í ljósi útbreiðslu COVID-19 í þeim löndum. Önnur slík svæði eru: Kína, Íran, Suður Kórea, Ítalía og skíðasvæði í Ölpunum.

Ástæða hækkunar á áhættumati er mikil fjölgun sýktra og alvarlega veikra í þessum löndum. Spánn (þar á meðal Kanaríeyjar), Þýskaland og Frakkland teljast því nú til hááhættusvæða.

Sóttkví
Íslendingar sem koma frá Spáni og Frakklandi skulu fara í sóttkví í 14 daga frá og með deginum í dag 14. mars 2020. Farþegar sem koma frá Þýskalandi skulu fara í sóttkví í 14 daga frá og með 12. mars 2020.

Ferðalög
Íslendingum er ráðið frá ferðalögum og Íslendingum á ferðalagi erlendis ráðlagt að íhuga hvort að ástæða sé til að flýta heimför.

Ekki er víst hvaða aðgang og réttindi Íslendingar munu hafa að heilbrigðisþjónustu auk þess sem heilbrigðiskerfi í mörgum ríkjum anna ekki álagi, hvort sem um er að ræða ferðamenn eða þá sem dvelja langdvölum erlendis.

Upplýsingar

Fólki sem er statt erlendis er ráðlagt að hafa samband við borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins í gegnum netfangið hjalp@utn.is, í síma 545-0-112 eða á Facebook-síðu ráðuneytisins.