Upplýsingafundur fyrir íbúa Grindavíkur nk. mánudag.

Mánudaginn 26. febrúar, kl. 17:00 til 19:00, heldur Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra upplýsingafund fyrir íbúa Grindavíkur. Fundurinn verður haldinn í Laugardalshöllinni og verður streymt. Markmiðið er að upplýsa íbúa um stöðu jarðhræringa og innviða í og við Grindavík.  Fram hefur komið að staðan sé ekki góð og því er mikilvægt fyrir íbúa að fá réttar upplýsingar í máli og myndum.

Dagskrá fundarins sem verður streymt.

  1. Háskóli Íslands / Freysteinn Sigmundsson  
  2. Veðurstofa Íslands / Kristín Jónsdóttir
  3. Varnargarðar / Vinnan í dag og næstu skref  – Ari Guðmundsson
  4. Jarðkönnun / Staðan og framhaldið / Hallgrímur Örn Arngrímsson
  5. Neysluvatn, frárennsli og almennt um stöðuna á innviðum Grindavíkurbæjar / Atli Geir Júlíusson
  6. Rafmagn og heita vatnið /  Reynir Sævarsson
  7. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum / Úlfar Lúðvíksson


Auk þessara aðila verða fulltrúar eftirtaldra á staðnum:

  • Vegagerðin
  • HS Veitur
  • HS Orka
  • Náttúruhamfaratrygging Íslands