Upplýsingafundur klukkan 19:00 í kvöld

Klukkan 19:00 í dag, sunnudaginn 14. janúar verður haldinn upplýsingafundur Almannavarna, fundurinn fer fram í Björgunarmiðstöðinni í Skógarhlíð.

Samhæfingastöð Almannavarna var í morgun virkjuð vegna yfirvofandi eldgoss nærri Grindavík, sem svo hófst rétt fyrir klukkan átta í morgun. Í framhaldi lýstu Almannavarnir yfir neyðarstigi.

Á fundinum verða Katrín Jakobsdóttir forsætirráðherra, Víðir Reynisson sviðsstjóri Almannavarna og fulltrúi frá Veðurstofu Íslands. Á fundinum verður farið yfir atburði dagsins.

Gert er ráð fyrir að fjölmiðlafólk geti tekið viðtöl eftir fundinn. Fundinum verður streymt, táknmálstúlkaður og túlkaður á pólsku.