Undirbúningur stjórnvalda, viðbragðsaðila og samstarfsaðila vegna almyrkva sem verður sýnilegur á Íslandi 12. ágúst 2026 er í fullum gangi. Búist er við miklum fjölda gesta og talsverðu álagi á samgöngur, innviði og viðkvæm svæði, sérstaklega þar sem almyrkvinn verður sýnilegur.
Á upplýsingagáttinni er hægt að nálgast helstu upplýsingar um viðburðinn.

Stýrihópur stjórnvalda vinnur að því að samræma undirbúning og tryggja yfirsýn yfir helstu verkþætti. Þá starfar samráðsvettvangur hagaðila undir forystu almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra þar sem reglulega fer fram stöðumat og áhættugreining.
Ábyrgð á aðgerðum og framkvæmd er, líkt og við önnur álagsverkefni, hjá viðkomandi sveitarfélögum, lögregluembættum og stofnunum á hverju svæði.
Gert er ráð fyrir auknu álagi á vegakerfi landsins og hafa Vegagerðin og lögreglan þegar undirbúið mögulegar ráðstafanir, svo sem:
- tímabundnar vegalokanir
- umferðartakmarkanir
- stýringar á umferðarflæði
Einnig er unnið að aðgerðum til að vernda viðkvæm náttúrusvæði sem gætu orðið fyrir miklu álagi.
Mikilvægar upplýsingar til almennings
Almannavarnadeild hvetur almenning að undirbúa sig vel og fylgjast með upplýsingum þegar nær dregur. Mikilvægt er að nota örugg sólmyrkvagleraugu til að fylgjast með almyrkvanum.