Úrkoma á Austurlandi nær hámarki í dag

Gert er ráð fyrir að úrkoma á Austurlandi nái hámarki síðar í dag og allar varúðarráðstafanir því enn til staðar vegna snjóflóðahættu meðal annars. Verið er að skoða mögulega opnun milli Neskaupstaðar og Eskifjarðar um Fannardal sem og frá Reyðarfirði yfir á Egilsstaði um Fagradal. Báðir þessir vegarkaflar eru lokaðir sem stendur.

Vegna mögulegrar úrkomu í formi rigningar eru íbúar beðnir um að huga að niðurföllum vegna vatnsaga.

Fundur er með Veðurstofu og Almannavörnum kl. 11 í dag þar sem staðan verður metin. Íbúar beðnir um að huga vel að tilkynningum á vef almannavarna, Veðurstofu og Vegagerðar sem og á fésbókarsíðum lögreglu og sveitarfélaga.