Útvíkkun áhættusvæða vegna COVID-19

Sóttvarnalæknir hefur ákveðið að útvíkka enn frekar hááhættusvæðin vegna COVID-19 frá og með morgundeginum.
 

Frá og með fimmtudeginum 19. mars 2020 er Íslendingum og öðrum með búsetu á Íslandi og koma til landsins skylt að fara í tveggja vikna sóttkví án tillits til hvaðan þeir eru að koma.

Undanþegnir þessu er flugáhafnir og áhafnir flutningaskipa.

Nánar um framkvæmd sóttkvíar: https://www.covid.is/flokkar/sottkvi