Viðvörun vegna óveðurs á landinu á morgun

Við viljum vekja athygli á eftirfarandi veðurspá Veðurstofunnar:
Á morgun, 1. desember, ganga skil norðaustur yfir landið með austan stormi og hríðarbyl á öllu landinu fyrst suðvestantil. Á morgun er því ekkert ferðaveður.
Spá fyrir landið suðvestanvert:
Vaxandi austan átt í nótt. Snemma í fyrramálið má búast við slæmu skyggni vegna skafrennings víða suðvestanlands, þar með talið á höfuðborgarsvæðinu og á
Reykjanesbraut. Hvessir enn þegar líður á morguninn og fer að snjóa og búast má við mikilli snjókomu fram eftir degi. Síðdegis milli kl 15. og 18. snýst vindur í hægari
vestan átt með éljagangi, fyrst á Reykjanesi.
Versnandi veðri er spáð austanlands seint á morgun með austan hvassviðri eða stormi og mikilli ofankomu.