Viðvörun vegna vatnavár og veðurs

Tilkynning frá Veðurstofunni  vegna veðurs og vatnavaxta næsta sólarhringinn: Spáð er mikilli rigningu sunnan og suðaustanlands með hlýindum seinni partinn í dag, fimmtudag, og fram á annað kvöld. Búast má við mestri úrkomu í kringum fjöll og jökla sunnan og suðaustanlands og þar gæti sólarhringsafrennsli (samanlögð úrkoma og snjóbráðnun) farið vel yfir 250 mm.
Mesta úrkoman verður á svæðinu frá Öræfum í vestri og að Seyðisfirði í austri. Varað er við vexti í ám sérstaklega í Lóni og Álftafirði. Búast má við staðbundnum flóðum á þessu svæði.
Einnig má búast við talsverðum áhrifum við austurströndina allt norður til Seyðisfjarðar.Aftur má búast við töluverðri rigningu á þessu svæði á laugardagskvöld en styttir upp á sunnudag.
Hafa skal þetta í huga áður en ferðalög eru skipulögð og fólki er bent á að athuga vel færð á vegum á síðu Vegagerðarinnar. Einnig er mælt með að fólk hugi að niðurföllum og frárennslisrörum og hreinsi frá svo vatni eigi sem greiðasta leið. Samfara aukinni úrkomu og afrennsli geta líkur á skriðuföllum aukist.

Kortið sýnir uppsafnað afrennsli (vegna úrkomu og leysinga) kl. 2:00 aðfaranótt laugardags