Vísindaráð fundaði vegna jarðskjálftahrinu í Kötlu

Vísindaráð almannavarna kom saman til fundar í dag, 3. október 2016, vegna jarðskjálftavirkni í Kötlu. Hér má lesa yfirlýsingu fundarins:

  • Vísindaráð almannavarna fundaði í dag vegna jarðskjálftahrinunnar í Mýrdalsjökli sem hófst á fimmtudag í síðustu viku. Þetta er stærsta einstaka hrina í Kötluöskjunni í áratugi. Mjög hefur dregið úr jarðskjálftavirkninni frá því hún varð mest á föstudaginn.
  • Ástæður skjálftanna eru líklega kvikuhreyfingar í efstu kílómetrum jarðskorpunnar. Engin ummerki um þessar hreyfingar sjást á yfirborði jökulsins.
  • Vatnamælingar sýna ekki breytingar sem hægt er að tengja við hrinuna.

 

  • Á föstudag meðan hrinan var í fullum gangi taldi vísindaráð eftirfarandi atburðarrásir mögulegar:
    • Jarðskálftahrinan hættir.
    • Mögulegt jökulhlaup án þess að eldgos nái í gegnum jökulinn.
    • Eldgos hefst í Mýrdalsjökli, gosmökkurinn nær í gegn með tilheyrandi jökulhlaupum

 

  • Hrinunni virðist nú vera að mestu lokið.
  • Ef litið er til virkninar síðustu tvo mánuði er ljóst að hún er mun meiri en verið hefur undanfarin ár. Á þessari stundu er óljóst hvort að virknin verður áfram mikil eða hvort nú fer að draga úr henni.

Almannavarnir starfa enn á óvissustigi vegna atburðanna í Kötlu.