FORSENDUR
Samkvæmt c-lið 1. mgr. 3. gr. laga nr. 40/2024 um framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ fer nefndin með stjórn, skipulag og framkvæmd gerðar áhættumats í þéttbýli í Grindavíkurbæ í samvinnu við ríkislögreglustjóra. Áhættumatið er unnið af ÖRUGG verkfræðistofu ehf., fyrir framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ. Framkvæmdanefndin hefur fjallað um áhættumatið og samþykkt útgáfu þess.
SAMANTEKT ÁHÆTTUMATS
Veðurstofa Íslands hefur lýst yfir að kvikuhlaup og eldgos á Sundhnúksgígaröðinni séu líklegasta sviðsmyndin þar sem kvikumagn heldur áfram að safnast fyrir undir Svartsengi og er orðið 26,6 milljón rúmmetrar.
Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum skilgreinir almannavarnarstig enn sem
óvissustig. Áhættan er samspil hættu, berstöðu, varnarleysis og heildar varna. Megin hættur koma fram í
hættumati Veðurstofu, þar sem mikil hætta er til staðar á Sundhnúksgígaröðinni norðan Grindavíkur, en í
Grindavík er heildar hættan metin töluverð og nokkur í Svartsengi. Berstaðan segir til um hverjir geti orðið
fyrir hættunni, íbúasamsetningu, ferðafólks o.fl. Nauðsynlegt er að horfast í augu við að áhættan dreifist ekki jafnt yfir alla hópa. Áhættumatið greinir því alls fimm hópa sem hafa mismunandi eiginleika. Varnarleysi er skilgreint sem flókið samspil líkamlegra, félagslegra, efnahagslegra, stofnanalegra og sálfræðilegra þátta sem auka næmi samfélags fyrir áföllum. Varnir lúta bæði að fyrirbyggjandi aðgerðum og viðbragða.
Áhættan í tilfelli eldsumbrota og rýmingar er ekki eingöngu háð líkum á að atburður eigi sér stað, heldur
uppsafnaðri áhættu sem skapast í atburðarrásinni. Virkni varna, ytri aðstæður, upplýsingar og ákvarðanataka í þeirri atburðarrás hefur allt áhrif á heildar áhættuna. Reiknað er með að fólk þurfi að komast óskaðað út af áhrifasvæði hættunnar og verði ekki fyrir langtíma áhrifum s.s. sálrænum.
Mikilvægt er að stöðugt sé byggð upp geta gagnvart ofangreindum ógnum, hvort sem um er að ræða auknar varnir og viðbrögð, auknar upplýsingar og þekkingu íbúa og ferðfólks, lækkun varnarleysis viðkvæmra hópa og trygga innviði o.s.frv. Sólarhrings vakt er hjá slökkviliði Grindavíkur, sem sinnir einnig eftirliti í Grindavík, en helstu atriði sem horft er til eru viðvera í bænum, ástand flóttaleiða, umferð, ástand girðinga og mannaferðir um afgirt svæði. Slökkvilið Grindavikur er með menntaðan sjúkraflutningarmann á öllum vöktum, en fullt viðbragð sjúkraflutninga frá Reykjanesbæ hefur lengst, með viðbragðstíma allt að 20 til 30 mín auk aksturstíma, sem er í dag 15 – 20 mín. Svona langur viðbragðstími getur haft slæmar afleiðingar oger mjög æskilegt að hann verði styttur, fyrir öryggi svæðisins til skamms og langs tíma. Mikilvægt er að hugsa sérstaklega að viðkvæmum hópum, með upplýsingum, áætlunum og æfingum um hvernig aðstoða geti þurfti þessa hópa ef til rýmingar kemur.
Nú með fjölgun ferðamanna þarf að auka upplýsingar og merkingar vegna fyrirliggjandi hættu. Þessar
upplýsingar þarf að bæta áður en aukning ferðafólks á sér stað, svo áhættustigið aukist ekki. Koma þarf á
framfæri upplýsingum um staðbundna hættu, rýmingu og önnur viðbrögð. Þetta er mikilvægt hlutverk
bæjaryfirvalda og ferðaþjónustuaðila, sem bera ábyrgð á að upplýsa sína gesti og þarf að taka alvarlega.
Ekki er hægt að gera ráð fyrir að varnir virki alltaf fullkomlega. Þetta er sérstaklega áríðandi þegar mikil óvissa er varðandi þá hættu sem er undirliggjandi, t.d. hvar gosopnun verður, hversu mikill kraftur er í gosinu, hvaða aðstæður eru á áhrifasvæði, fjöldi fólks og aðstæður, tími dags og hvaða aðrar hættur gerast samhliða. Öll frávik geta enn fremur leitt til keðjuverkunar, þar sem ein bilun leiðir af sér aðra. Þannig getur rafmagnsleysi haft áhrif á fjarskipti, sem minnkar getu til viðvörunar og réttra viðbragða, sem leiðir til skertrar getu til rýmingar. Rof á vegum getur skapað hættu vegna rýmingar, lengt tíma viðbragðsaðila gagnvart björgun og aukið varnarleysi hópa.
Á meðan mikil óvissa er til staðar varðandi undirliggjandi hættu og þar með áhrif hennar á mismunandi hópa verður að beita varúðarreglu, og gera ráð fyrir að ekki sé hægt að sjá alla atburði fyrir.
Hér að neðan er hægt að sjá allt áhættumatið.