Fyrsti hluti af langtímahættumati vegna hraunavár á Reykjanesskaga kominn út

Í dag birti Veðurstofa Íslands nýjar skýrslur, kort og gögn um eldfjallavá á Reykjanesskaga. Þar á meðal eru niðurstöður langtímahættumats vegna hraunavár, auk annarra upplýsinga sem varpa ljósi á mögulega eldvirkni og áhrif hennar á svæðið.

Efnið er hluti af víðtækara verkefni Veðurstofu Íslands um hættu- og áhættumat fyrir Reykjanesskaga, sem miðar að því að styrkja undirbúning, skipulag og viðbragðsgetu samfélagsins. Gert er ráð fyrir að fleiri skýrslur og gögn verði birt eftir því sem verkefninu vindur fram og vinna við hættu- og áhættumatið heldur áfram.

Ítarlegri upplýsingar er hægt að finna á www.eldfjallava.is og hér er frétt á vef Veðurstofunnar um málefnið. Hér á vef okkar hjá almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra er hægt að nálgast ítarlegri upplýsingar í formi Spurt og svarað. Þar er einnig hægt að nálgast skýrslur Veðurstofu Íslands. Á vefnum eldfjallava.is er einnig hægt að kynna sér verkefnið.