Neyðarstig í gildi vegna skriðuhættu á Seyðisfirði

Ríkislögreglustjóri hefur ákveðið að hækka almannavarnastig á Seyðisfirði úr hættustigi í neyðarstig.

Stór aurskriða féll úr Botnabrún, milli Búðarár og Stöðvarlækjar, skömmu fyrir klukkan þrjú í dag og féll á nokkur hús. 

Allir íbúar og aðrir á Seyðisfirði eru beðnir um að mæta í félagsheimilið Herðubreið og gefa sig fram í 

fjöldahjálparstöð eða hringja í síma 1717. Stefnt er að því að Seyðisfjörður verði rýmdur.

Allar björgunarsveitir  á Austurlandi hafa verið boðaðar og lögreglumenn frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, sérsveit ríkislögreglustjóra og frá logreglunni á Norðurlandi eystra hafa einnig  verið sendir á staðinn.

English translation

Polish translation