Óvissustigi Almannavarna vegna rigninga á Austurlandi aflýst.

Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Austurlandi hefur ákveðið að aflýsa óvissustigi Almannavarna, vegna mikilla rigninga á Austurlandi. Fyrr í dag var hættustigi Almannavarna aflýst.  Sjá tilkynningu. Fyrr í dag var öllum rýmingum á Seyðisfirði aflétt.