Mikil úrkoma og asahláka þegar líður á vikuna

Upplýsingar frá Veðurstofunni: Spáð er talsverðri rigningu á sunnanverðu landinu á fimmtudag. Á laugardag hlýnar mjög ört með suðaustan stormi og talsverðri rigningu. Því má gera ráð fyrir vatnavöxtum á sunnan- og vestanverðu landinu. Fólk er beðið um að sýna aðgát í nágrenni vatnsfalla og sérstaklega ef fara þarf yfir ár, þar sem vöð geta orðið varhugaverð. Þetta verður fyrsta asahláka ársins með mikilli úrkomu og leysingum svo að líklegt er að afrennsli verði mjög mikið.