Virkjun almannavarnakerfisins á síðasta ári

Almannavarnakerfið var virkjað fjórtán sinnum árið 2016. Oftast var það virkjað vegna flugvéla sem voru í einhverskonar vanda en þær lentu allar heilu og höldnu. Almannavarnakerfið var ræst tvisvar vegna rútuslysa, einu sinni vegna elds um borð í hvalaskoðunarbát, einu sinni vegna óveðurs og tvisvar vegna hræringa undir Mýrdalsjökli (tafla 1). Athygli vekur að hvergi var lýst yfir almannavarnastigi vegna snjóflóðahættu á árinu 2016.

Virkjun almannavarnakerfisins árið 2016.

Tegund Óvissustig Hættustig Neyðarstig Æfing
Flug 2 6 4
Umferðarslys 2 6
Sjór 1
Veður 1
Eldgos/jarðhræringar 2 5
Annað 4

 

Nítján æfingar voru haldnar í Samhæfingarstöð almannavarna á árinu. Í fjórum tilfellum vegna vettvangsæfinga á flugslysaáætlunum, sex sinnum vegna annarra hópslysaæfinga, fimm sinnum voru æfingar sem tengdust jarðhræringum eða eldgosum og fjórar æfingar vegna atburða af öðru tagi. Eitt námskeið var haldið fyrir nýliða í áhöfn stöðvarinnar dagana 28. til 30. október.